Skólameistari Menntaskólans við Tröllaskaga hefur fengið leyfi frá Bæjarráði Fjallabyggðar til að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla fyrir nemendur og starfsfólk skólans við norðurgafl hússins. Ekki kom fram í erindi skólameistara MTR hver kostnaður væri við þessa uppsetningu. Að auki hefur Bæjarráð Fjallabyggðar lýst yfir ánægju sinni með framtakið.
↧