Í tilefni af 100 ára afmæli Kirkjukórs Ólafsfjarðar verður haldin afmælishátíð í menningarhúsinu Tjarnarborg, laugardaginn 5. nóvember næstkomandi. kl. 15:00-17:00. Allir vinir og velunnarar kórsins eru velkomnir, sérstaklega allir þeir sem hafa sungið í kórnum eða spilað með á hljóðfæri. Til skemmtunar verður kórsöngur, myndasýningar, upplestur, kaffiveitingar og fleira.
↧